Æfingadagbók - Laugardagur
- asmckee6
- Dec 19, 2022
- 2 min read
Laugardagur í lífi sundmanns er alltaf skemmtilegasti dagurinn. Þar sem sunnudagur er hvíldardagur, þá er laugardagsæfingin seinasta æfing í vikunnar og sú erfiðasta. Oftar en ekki þá er markmið æfingarinnar að æfa loftfirrta þröskuld líkamans, eða það líkamsálag þar sem hröð aukning verður á mjólkursýrumyndum og sýran fer að safnast upp í blóðinu. Þetta eru mikilvægar æfingar bæði til að hækka loftfirrta þröskuld líkamans, sem gerir honum kleift að vinna lengur í loftháða kerfinu áður en sýra fer að myndast, og einnig til að þjálfa vöðvana til að búa til meiri kraft þegar sýra hefur myndast, sem líkir mjög eftir keppnum. Í dag var áherslan einmitt loftfirrtur þröskuldur og öndunarstjórnun að auki.
Eftir tveggja kílómetra upphitun tók við aðalsettið sem var fjögur sett af 3x75m á fullu stað á 2 mínútum í fyrsta setti og svo minnkaði hvíldin um 10 sekúndur eftir hvert sett, með 6 mínútna hvíld milli umferða til að synda niður. Eftir þetta kláruðum við æfinguna með 75m á fullu með stungu og syntum við því næstum kílómetri á fullu.
Æfingin var synt í 25 metra laug og bringusundsmennirnir urðu að fara 15 metra í kafi af hverjum vegg og máttum við bara taka 4 til 5 bringundsundstök hvern 25 metra. Þetta þýðir að á sama tíma og við syndum á fullu, þá fær líkaminn takmarkað súrefni á meðan sundinu stendur. Til þess að komast 15 metra í kafi og taka 4 tök í hverri ferð er mikilvægt að einblína á tæknina í hverju einasta taki. Í kafsundinu þarf maður að ná góðri spyrnu frá bakkanum og renna vel áður en maður byrjar kafsundstakið. Til að ná 4 tökum er einnig mikilvægt að renna eins vel og hægt er, en á sama tíma má ekki renna of lengi því þá tapar maður hraða. Þessi samblanda af hraða og takafjölda takmörkun gerði settið bæði krefjandi líkamlega og andlega, því tæknin varð að vera fullkomin.
Eftir sundið tók við smá hvíld og hádegismatur áður en farið var í ræktina til að klára seinustu lyftingaræfingu vikunnar. Eins og hjá öllum bringusundsmönnum þá er mikilvægt að ég hafi sterka aftanverða lær vöðva og rassvöðva þar sem þessir vöðvar knýja mig áfram í sundinu. Sem betur fer tekur réttstöðulyfta vel á þessum vöðvum, og var hún aðalæfingin í dag.
Eftir 10 mínútur af teygjum og 3 upphitunar sett í réttstöðulyftinni tók við aðalsettið, sem var 4x4 repp 82% af maxi og svo 2x2 repp af 87% af maxi. Eftir hvert sett var svo mínútu hvíld. Til að passa uppá mjóbakið þá lyfti ég alltaf með belti þegar ég settin eru svona þung. Til að klára svo æfinguna tók við 4 sett af 8 good mornings, til að algjörlega slátra aftanverðum lær vöðvunum, og 5 þröngum bekkpressum.
Skemmtilegur dagur. Núna tekur hvíld við í 36 tíma.
Comments